top of page
Search

Stóðhestar frá Dallandi sumarið 2025

  • Dalur HorseCenter
  • Jun 6
  • 2 min read

Dalur hestamiðstöð býður upp á fimm stóðhesta til notkunar sumarið 2025. Það eru þeir Glúmur, Guttormur, Konfúsíus, Ósmann og Súper-Stjarni allir frá Dallandi. 



Glúmur er hæst dæmdi hesturinn frá búinu, hann hefur fengið í aðaleinkunn 8.81 í kynbótadómi.

Hann var efstur 7v. og eldri stóðhesta á landsmóti 2018, einnig hefur hann gert góða hluti í keppni, hann var til dæmis í A-úrslitum í A-flokki á fjórðungsmóti 2021 og var einnig í A-úrslitum í A-flokki á Landsmóti 2022. Glúmur hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi árið 2024.

F: Glymur frá Flekkudal (8.52 - 1.verðlaun)

M: Orka frá Dallandi (8.22)

Glúmur verður til að byrja með í húsnotkun í Dal hestamiðstöð, Mosfellsbæ og fer svo í hólf hér í Dal. Verð: 180.000 m/öllu (tollur, girðingagjald/umsýslugjald og einn sónar).

Frekari upplýsingar veitir Axel Örn í s: 857-1585 eða email: axel@dalur.is




Guttormur frá Dallandi er fyrstu verðlauna stóðhestur með 8.61 í aðaleinkunn, 8.44 fyrir byggingu þar af 9 fyrir hófa og réttleika og 8.70 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir tölt, brokk, skeið og samstarfsvilja. Guttormur hefur verið í verðlauna sæti á seinustu tveimur Landsmótum í sínum aldursflokki stóðhesta. Hann er undan Spuna frá Vesturkoti (8.92 - Heiðursverðlaun) og Grósku frá Dallandi (8.2)




Guttormur verður í húsnotkun í Dal hestamiðstöð, fer svo í girðingu í Héraðsdal, Skagafirði. Verð: 180.000 m/öllu (tollur, girðingagjald/umsýslugjald og einn sónar).

Frekari upplýsingar veita: Axel Örn í s: 857-1585 eða email: axel@dalur.is, og Gunnar B. Dungal í s: 822-2010 eða email: gunnar@dalur.is




Konfúsíus frá Dallandi er 1. verðlauna stóðhestur með 8.39 í aðaleinkunn, þar af 9 fyrir samræmi og hófa. Hann er með jafnar og góðar gangtegundir, stór og myndarlegur.

F: Konsert frá Hofi (8.72 - 1.verðlaun f. afkvæmi)

M: Gróska frá Dallandi (8.2)

Konfúsíus verður í húsnotkun í Dal hestamiðstöð, verð:135.000 m/öllu (vsk, girðingagjald/umsýslugjald og einn sónar).

Frekari upplýsingar veitir: Axel Örn í s. 857-1585 eða email: axel@dalur.is



 



Ósmann frá Dallandi, 1 verðlauna stóðhestur með 8.22 í aðaleinkunn, 8.26 fyrir sköpulag og 8.19 fyrir hæfileika, Hann er með einkar góðar herðar en 14 cm munur er á milli herða og baks. Ósmann hefur frábært geðslag og góðar og jafnar gangtegundir. F: Sólon frá Þúfum (8.9)

M: Gróska frá Dallandi (8.2)





Ósmann verður til að byrja með í húsnotkun í Dal hestamiðstöð, Mosfellsbæ og fer svo í hólf hér í Dal. Verð: 135.000 m/öllu (tollur, girðingagjald/umsýslugjald og einn sónar).

Frekari upplýsingar veitir Axel Örn í s: 857-1585 eða email: axel@dalur.is




Súper-Stjarni frá Dallandi er 5 vetra undan Adrían frá Garðshorni á Þelamörk (8.63 - 1. verðlaun fyrir afkvæmi) og Dunu frá Dallandi (8.01) Hann er stór og myndarlegur hestur sem stefnt er með í dóm í sumar.

Súper-Stjarni verður til að byrja með í húsnotkun í Dal hestamiðstöð, verð: 135.000 m/öllu (tollur, girðingagjald/umsýslugjald og einn sónar).

Frekari upplýsingar veitir Axel Örn í s: 857-1585 eða email: axel@dalur.is

 
 
 

Comentarios


DALUR HESTAMIÐSTÖР

Skráðu þig á póstlista

Dalur

271 Mosfellsbær 

Iceland

Skráðu þig á póstlista og fáðu póst um nýjustu fréttir hjá okkur. 

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page