top of page
Search
  • Dalur HorseCenter

Gróska frá Dallandi hefur hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi


Við erum afar stolt af því að Gróska frá Dallandi hlaut nú í ár heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

Gróska er undan heiðursverðlauna hestinum Huginn frá Haga (8.57) og heiðursverðlauna hryssunni Gnótt frá Dallandi (8.12) Í dómsorðum um Grósku stendur: "Gróska gefur stór hross. Höfuð er svipgott og eyrun vel borin. Hálsinn er langur og reistur við háar herðar. Bakið hefur að jafnaði góða yfirlínu og lendin er öflug. Afkvæmin eru hlutfallarétt. Sinar eru öflugar og réttleiki góður. Hófar eru efnismiklir, með þykkum hælum og hvelfdum hófbotni. Prúðleiki yfirleitt mikill. Afkvæmin eru ýmist alhliðageng eða klárhross. Töltið er rúmt með góðri fótlyftu. Brokkið er takthreint og rúmt með góðri fótlyftu. Þegar skeið er til staðar er það rúmt, skrefmikið og öruggt. Stökkið er rúmt, skrefmikið og með góðri fótlyftu. Hæga stökkið er oft fremur sviflítið en með góðri fótlyftu. Fetið er misgott, tvö afkvæmanna hafa úrvalsgott fet. Afkvæmin eru viljug og þjál og fara vel í reið með góðum fótaburði. Gróska hlýtur heiðursverðlaun og sjöunda sætið".


Gróska á fimm sýnd afkvæmi, þar á meðal er Guttormur frá Dallandi sem er hæst dæmdi 6 vetra stóðhesturinn árið 2023, með 8.61 í aðaleinkunn, þarf af 9.0 fyrir tölt, brokk og skeið.

Önnur sýnd afkvæmi eru:

  • Gullhamar frá Dallandi (7.99) F: Hrannar frá Flugumýri

  • Konfúsíus frá Dallandi (8.36) F: Konsert frá Hofi

  • Gráða frá Dallandi (7.99) F: Glúmur frá Dallandi

  • Ósmann frá Dallandi (7.93) F: Sólon frá Þúfum






Gullhamar frá Dallandi


Gráða frá Dallandi

251 views0 comments
bottom of page